Ellefti áttundi
Ég held að konan sé að sjóða lamb á fæti með ull og det hele!!! Lyktinn er rosalega vond.. það kemur nú ekki mikil lykt inní kompuna mína en ég verð að halda í mér andanaum ef eg hætti mér fram á gang.
Í dag fór ég til Seyðisfjarðar. Rosalega lítill og krúttlegur bær. Norræna var ný komin svo bærinn var fullur af fólki og lífi.. kanski séð bæinn skarta sýnu fegursta. Leiðin þangað er rosalega brött og krókótt.. sennilega ekki hægt að fara fra bænum frá okt til mai!!!! ég held að ég myndi ekki lifa af einn vetur á þessum stað en væri alveg til í að vera ferðamaður þarna í nokkra daga. Held að eg geti nú sagt það sama um alla hina bæina sem eg er buin að fara til. Þeir eru allir voða vinalegir og mig virkilega langar að vera nokkra daga á hverjum stað. Landslagið hér er svo magnað, allt öðruvísu en ég hef séð á íslandi áður. Kanski líkast Vestfjörðum en fjöllinn eru allt öðruvísi í laginu, gróðurinn er öðruvísi og litirnir eru aðrir líka.. þannig ekkert líkt með þessum landshlutum? jú kanski hæðin á þeim. .. Þetta er orðið þannig að eg er farin að telja upp staði sem eg hef ekki komið á ... Finnst það frábært.. Búin að sjá hvernig þetta lítur út svona í heildina og get nú farið að einbeita mér að smáu stöðunum og afdölunum... veit um svo marga staði sem mig langar að sjá og vera á.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home